Hornsteinn í íslenskum byggingariðnaði
Við ætlum að gera mannvirkjagerð á Íslandi vistvænni þar sem gæði, ending og sjálfbærni er höfð að leiðarljósi.

Starfsemi og dótturfélög
Þekking, reynsla og gæði
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn er móðurfélag BM Vallár og Björgunar-Sements (áður Sementsverksmiðjan og Björgun) sem bæði eiga langa og rótgróna sögu í íslenskum byggingariðnaði. Fyrirtækin byggja starfsemi sína á sterkri gæða- og þjónustuvitund og saman mynda þau hornstein í mannvirkjagerð þar sem kröfur um gæði og endingu eru í fyrirrúmi.
Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda eru rauður þráður í starfseminni. Markvisst er unnið að lausnum sem hafa jákvæðari umhverfisáhrif og það hefur vakið eftirtekt. BM Vallá var valið bæði Umhverfisfyrirtæki ársins og hlaut Kuðunginn fyrir framúrskarandi árangur í umhverfismálum árið 2024.
Sameiginleg yfirbygging
Stjórnskipulag samstæðunnar
Dótturfélögin BM Vallá og Björgun-Sement starfa sem sjálfstæðar einingar þar sem dagleg stjórnun er í höndum viðkomandi stjórnenda. Móðurfélagið Hornsteinn sinnir almennri stjórnun á samstæðunni, samræmingu og umsjón með starfsemi dótturfélaga, þar með talið fjármál, bókhald, reikningagerð, gæða- og öryggismál, innkaup, mannauðsmál, umhverfismál, upplýsingatækni og markaðsmál.
Daglegur rekstur byggist á því að nýta sameiginlega yfirbyggingu, styrk og sérþekkingu til að tryggja yfirsýn yfir byggingariðnaðinn, grípa tækifæri og bregðast við áskorunum til að styðja við trausta ákvörðunartöku og árangursríkan rekstur.


Vistvænni mannvirkjagerð
Sjálfbærni alltumlykjandi
Byggingariðnaðurinn hefur ekki farið varhluta af kröfum og áherslum um lausnir með jákvæðari umhverfisáhrif og minna kolefnisspor.
Hornsteinn tekur þessum áherslum fagnandi og vinnur að metnaðarfullum aðgerðum á sviði sjálfbærni. Þar á meðal má nefna markmið BM Vallár um kolefnishlutlausa starfsemi árið 2030, þróun vistvænna sements og umhverfisyfirlýsingar hjá Björgun-Sement.